28.01.05 - 06:25
Magnús Már Einarsson
Litmanen til Hansa Rostock (Staðfest)




Finnski sóknarmaðurinn Jari Litmanen hefur gert eins og hálfs árs samning við þýska liðið Hansa Rostock. Þessi fyrrum leikmaður Liverpool, Barcelona og Ajax kemur frítt til Hansa frá finnska liðinu FC Lahti en þar hefur hann verið síðan að hann yfirgaf Ajax í apríl á síðasta ári.
,,Það er frábær áskorun fyrir mig að hjálpa Hansa í fallbaráttuslagnum og Bundesligan er alveg nýr reynsla." Sagði hinn 33 ára gamli Litmanen á heimasíðu Hansa í gær.
