Fotbolti.net
28.01.05 - 12:32

Þórður Guðjónsson einnig til Stoke (Staðfest)

Þórður Guðjónsson einnig til Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Landsliðsmaðurinn Þórður Guðjónsson hefur skrifað undir samning við Stoke City. Þórður gekkst undir læknisskoðun í morgun og skrifaði í kjölfarið undir 18 mánaða samning.
"Við erum hæstánægðir að tilkynna það að Þórður Guðjónsson hefur skrifað undir 18 mánað samning við Stoke City" sagði John Rudge yfirmaður knattspyrnumála. "Þórður verður mikill happafengur fyrir liðið og ég og Tony Pulis erum mjög ánægðir með komu hans" bætti Rudge við.

Þórður sem er 31 árs gamall fékk sig lausan frá þýska liðinu Bochum þar sem hann hefur lítið fengið að spila á undanförnum misserum. Þórður á 58 landsleiki að baki með íslenska landsliðinu og hefur hann skorað í þeim þrettán mörk auk þess að hafa verið fyrirliði í einum leik.

Eins og við greindum frá í fréttinni hér á undan hefur Tryggvi Guðmundsson einnig gengið til liðs við Stoke og verður spennandi að fylgjast með strákunum hjá liðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.