28.01.05 - 17:50
Hafliði Breiðfjörð
Cerny til Tottenham (Staðfest)

Tottenham Hotspur gerðu í dag 18 mánaða samning við Radek Cerny markvörð Slavia Prag. Cerny er þrítugur tékkneskur landsliðsmaður og mun verða varamarkvörður liðsins á eftir Paul Robinson. Hann tekur stöðu Kasey Keller sem gekk í raðir Borussia Moenchengladbach.
,,Hann verður 31 árs í febrúar og þetta er tilvalið fyrir hann og okkur. Hann verður hér í 18 mánuði," sagði Frank Arnesen yfirmaður íþróttamála hjá félaginu.
,,Við eigum þrjá mjög góða unga markverði. Marton Fulop, Robert Burch og Nicky Eyre, þeir eru fyrir framtíðina," bætti hann við.
,,Okkur vantar einn í millitíðinni, þar sem Kasey Keller er farinn og við viljum senda ungu markverðina á lán til liða sem keppa á sterkara stigi en varaliðakeppnini. Við vorum að leita að mjög góðum markverði sem vill spila, en veit samt að Paul Robinson er ofar í goggunarröðinni."