Fotbolti.net
28.01.07 - 06:00
Andri Fannar Stefánsson

Alexei Smertin til Fulham (Staðfest)

Alexei Smertin til Fulham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hafa gengið frá kaupum á Alexei Smertin frá Dynamo Moskvu og hefur hann skrifað undir tveggja og hálfs árs samning.
Þessi 31 árs rússneski miðjumaður lék á árum áður með Chelsea, Portsmouth og Charlton áður en hann hélt heim á leið til Rússlands en nú er hann kominn aftur í ensku úrvalsdeildina.

Smertin kostaði Chelsea tæplega þrjár og hálfa milljón punda á sínum tíma þegar þeir fengu hann frá Bordeaux í ágúst árið 2003.

,,Ég er ánægður með að geta klárað öll mín mál hér hjá Dynamo sem geirr mer kleift að geta spilað í ensku úrvalsdeildinni aftur. Ég hef góða reynslu héðan vegna tímans sem ég var hér áður," sagði Smertin.

,,Þar sem að enska úrvalsdeildin er sú erfiðasta í heiminum er ég mjög sáttur með að fá tækifæri til að spila í henni aftur."

Chris Coleman stjóri Fulham var að vonum sáttur þegar þeir höfðu náð samkomulagi við rússneska liðið um að Smertin væri laus allra mála og þegar Fulham hafði unnið kapphlaupið um undirskrift hans en sex önnur lið voru á eftir kappanum.

,,Í heildina séð þá finnst mér að við höfum gert vel í janúarglugganum og núna lít ég til þess að komast ofar á töfluna og ég er ekki í neinum vafa um það að hvort nýju leikmennirnir munu hjálpa til við það."

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.