Fotbolti.net
28.01.08 - 15:59
Magnús Már Einarsson

Reading kaupir kantmann frá Lens (Staðfest)

Reading kaupir kantmann frá Lens (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur keypt kantmanninn Jimmy Kebe frá Lens en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Kebe sem er 24 ára kemur frá Malí en hann hefur gert tveggja ára samning við Reading.

Á þessari leiktíð hefur hann verið í láni hjá US Boulogne í frönsku annarri deildini þar sem hann hefur skorað fimm mörk í sextán leikjum.

,,Jimmy er kantmaður sem hefur hraða og er hávaxinn ," sagði Nick Hammond yfirmaður íþróttamála hjá Reading.

,,Hann hefur verið að spila í frönsku fyrstu deildinni svo hann hefur ekki beint verið á vörum fólks en við höfum fylgst með honum í þónokkurn tíma og í hvert skipti sem okkar fólk hefur fylgst með honum þá hefur Jimmy skipt sköpun," sagði Hammond.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.