Fotbolti.net
28.01.08 - 20:18
Davíð Örn Atlason

Woodgate til Tottenham (Staðfest)

Woodgate mun ekki klæðast þessum búningi á næstunni

Woodgate mun ekki klæðast þessum búningi á næstunni

Canon

Mynd: Getty Images

Tottenham hafa fest kaup á Jonathan Woodgate frá Middlesbrough.
Woodgate er kominn á White Hart Lane eftir að hafa staðist læknisskoðun og samþykkt samning við Lundúnarfélagið.

Tottenham unnu kapphlaupið um leikmanninn en tilboð Newcastle í hann var einnig samþykkt en Woodgate valdi Tottenham.

Woodgate er ekki fyrsti leikmaðurinn sem Juande Ramos, knattspyrnustjóri Tottenham nælir í í janúarglugganum. Chris Gunter kom frá Cardiff fyrr í mánuðinum.

Woodgate mun væntanlega spila sinn fyrsta leik fyrir Tottenham á miðvikudaginn þegar þeir leika gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.