Roma vill Casemiro - Napoli og Juventus fylgjast með Höjlund - Úlfarnir búast við tilboðum í Cunha
   þri 28. janúar 2025 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Forseti Santos staðfestir samkomulag við Neymar
Mynd: EPA
Brasilíumaðurinn Neymar er á leið heim til Santos en forseti félagsins hefur staðfest fregnirnar.

Greint hefur verið frá því að samningi hans við Al-Hilal hafi verið rift og hann mun því geta farið til Santos á frjálsri sölu en hann verður formlega orðinn leikmaðru liðsins á næstu dögum.

Marcelo Teixeira, forseti Santos, deildi myndbandi á Instagram síðu sinni af Neymar þegar hann var leikmaður Santos á sínum tíma en hann er uppalinn þar en gekk til liðs við Barcelona árið 2013.

„Það er komið að þessu Neymar. Það er kominn tími til að þú komir aftur, heim til þín, til okkar ástkæra félags. Velkominn, strákurinn frá Vila. Komdu og vertu ánægður aftur klæddur hinum heilaga mötul. Santos bíður þín með opnum örmum," skrifaði Teixeira.

Neymar mun skrifa undir hálfs árs samning en hann vonast til að snúa aftur til Evrópu.



Athugasemdir
banner
banner