Fotbolti.net
28.02.07 - 11:16
Magnús Már Einarsson

Þróttur fær Hauk Ólafsson á láni frá FH (Staðfest)

Haukur í bikarúrslitaleiknum í 2.flokki karla í fyrra.

Haukur í bikarúrslitaleiknum í 2.flokki karla í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur úr fyrstu deild hefur fengið miðjumanninn Hauk Ólafsson að láni frá FH. Haukur sem verður tvítugur í ár á fjóra leiki að baki með U-17 ára landsliði Íslendinga.
Hann lék tvo leiki í Landsbankadeildinni með Íslandsmeisturum FH síðastliðið sumar en hann lék einnig með öðrum flokki félagsins sem varð Íslands og bikarmeistari.

Haukur hefur þegar fengið leikheimild með Þrótti og því er hann löglegur með liðinu gegn KR í Lengjubikarnum næstkomandi sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.