28.02.08 - 16:05
Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Bjarnason: KR-ingar fóru í einhverja fýlu

Tryggvi Sveinn í leik með KR í Landsbankadeildinni í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Tryggvi Sveinn gætir Björgólfs Takefusa í leik KR og Fylkis fyrir nokkrum árum.

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Tryggvi skallar frá marki í leik gegn Fram á KR-velli.

Mynd: Fótbolti.net - Daníel Rúnarsson

Tryggvi Sveinn Bjarnason gekk í dag í raðir Stjörnunnar úr Garðabæ frá uppeldisfélagi sínu KR og í tilefni af því ræddum við við hann um sitt nýja félag og viðskilnaðinn við KR sem hann er heldur ósáttur við.
,,Ég þurfti að finna mér lið og Stjarnan var eitt af þeim félögum sem höfðu samband við mig og mér leist best á þá ef ég á að segja alveg eins og er," sagði Tryggvi við Fótbolta.net í dag.
,,Það voru nokkur félög sem ég gat valið úr en mér leist lang best á Stjörnuna, bæði metnað þeirra og það sem þeir ætla sér. Líka það sem þjálfarinn ætlaði mér. "
Stjarnan leikur heimaleiki á gervigrasvelli sínum við Ásgarð allt tímabilið eins og þeir hafa gert undanfarin ár en Tryggvi setti það ekki fyrir sig þegar hann ákvað að ganga í raðir félagsins.
,,Það er alltaf skemmtilegast að spila á grasi en mér finnst þetta allt í lagi," sagði hann. ,,Þar að auki er annar hvor leikur á útivelli svo helmingur leikjanna fer fram á grasi. Þetta er ekkert stórmál."
Stjörnumenn hafa verið að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi leiktíð og hafa fengið Bjarna Þór Halldórsson markvörð úr Fylki auk þess að fá þá Kára Ársælsson og Ellert Hreinsson á láni úr Breiðablik. Ætlar Tryggvi að spila í Landsbankadeildinni sumarið 2009?
,,Við stefnum á það en svo sjáum við eftir tímabilið hvað verður. Þetta er sterk deild og liðin eru mörg hver jöfn að styrk. Ég held að við eigum fína möguleika á að fara upp eins og þrjú til fjögur önnur lið í deildinni."
1. deildin er frábrugðin Landsbankadeildinni að því leiti að í þeirri deild eru gífurlega mikið ferðalög í leiki. Stjarnan þarf þannig að fara tvisvar á Akureyri, Ólafsfjörð, Fjarðabyggð, Vestmannaeyjar og á fleiri staði. Það truflar Tryggva lítið.
,Það er lítið vandamál. Ég spilaði með ÍBV í tvö ár og þá var alltaf verið að þvælast til Reykjavíkur eða Akureyrar og það hefur aldrei truflað mig. Hvort sem ég hef þurft að taka Herjólf eða fljúga. Það er allt í góðu og þjappar bara hópnum saman."
Tryggvi hafði verið að skoða aðstæður hjá þremur norskum liðum, Kongsvinger, Nododden, og FC Hödd og vakti allstaðar áhuga en hefur nú gefið það upp á bátinn í bili. ,,Það voru allir mjög ánægðir með mig en svo fékk ég aldrei svar og ég gat ekki beðið endalaust," sagði Tryggvi.
Tryggvi hafði sagt í samtali við Fótbolta.net fyrr í vetur að eina liðið sem kæmi til greina ef hann færi ekki til Noregs yrði KR, en ákvað svo að fara til Stjörnunnar. Við spurðum hann hvað hafi breyst?
,,Það breyttist eitthvað hjá stjórn KR, ekki hjá mér," svaraði hann. ,,Ég hefði viljað vera áfram í KR. Þeir fóru í einhverja fýlu og þá var ekkert um annað að ræða fyrir mig að finna eitthvað annað lið. Ég veit í raun ekki hver ástæðan fyrir þessu var, þetta er rosalega undarlegt. Þeir drógu allt til baka sem þeir voru búnir að lofa."
Tryggvi er uppalinn hjá KR þar sem hann hefur leikið alla sína tíð utan árin tvö í Vestmannaeyjum. Samtals á hann að baki 49 leiki með KR í efstu deild. Hann sagði erfitt að yfirgefa félagið.
,,Auðvitað er það erfitt en fótboltinn er bara orðinn þannig núna að þú spilar ekkert fyrir félagið þitt endilega allan þinn feril. Það eru alltaf allir að skipta um lið. Þetta er bara hluti af þessu og fyrir mér er gott að prófa eitthvað nýtt."
Bjarni Jóhannsson hefur tekið við þjálfun Stjörnunnar og að lokum spurðum við Tryggva hvernig honum litist á nýja þjálfarann sinn. ,,Mjög vel, hann er með frábært record hjá öllum liðum sem hann hefur farið til og það skemmir ekki fyrir."
Sjá einnig:
Tryggvi Sveinn Bjarnason í Stjörnuna (Staðfest)