Fotbolti.net
28.02.20 - 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fabregas tapaði veðmáli og gaf ónýtan Range Rover

Cesc Fabregas.

Cesc Fabregas.

Canon

Mynd: Getty Images

Marcin Bulka, markvörður Paris Saint-Germain sem var áður fyrr hjá Chelsea, var í áhugaverðu viðtali við pólsku Youtube-rásina Foot Truck á dögunum. Þar lét hann mikið flakka.

Úr viðtalinu:
„Di Maria hatar Manchester United"
Fyrrum liðsfélagi Hazard: Hann elskar hamborgara
Hann sagði einnig frá því að Cesc Fabregas hefði tapað veðmáli við markvörðinn Willy Caballero er þeir léku saman hjá Chelsea. Þar sem Fabregas tapaði veðmálinu þá þurfti hann að gefa Caballero Range Rover bifreið - hvorki meira né minna.

Fabregas hafði mikla trú á sjálfum sér á vítapunktinum og gerði hann veðmál við markverði Chelsea á æfingasvæðinu.

„Einu sinni á æfingu þá sagði hann við einn af markvörðunum: 'ef þú verð vítaspyrnu frá mér þá gef ég þér einn af tveimur bílum mínum á morgun'," sagði Bulka.

„Markvörðurinn varði ekki, en síðar gerði Fabregas sama veðmál við Willy Caballero. Hann sagði: 'ef þú verð vítaspyrnuna mína, þá kaupi ég handa þér Range Rover'. Willy varði svo vítaspyrnuna frá honum."

„Næsta dag er Range Rover á bílastæðinu, líklega er hann frá 1990, um það leyti. Það voru allar rúður brotnar, hurðin að detta af, enginn spegill. Svo segir hann við Willy: 'hérna er Range Rover-inn þinn."

Hér að neðan má sjá tíst frá Fabregas, sem leikur með Mónakó í dag, eftir að þessi saga kom út opinberlega.

Vítabaninn Willy Caballero.

Vítabaninn Willy Caballero.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.