Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. febrúar 2020 15:30
Elvar Geir Magnússon
Líkleg byrjunarlið Watford og Liverpool
Mynd: Guardian
Klukkan 17:30 á laugardag mun Watford taka á móti Liverpool en leikurinn verður sýndur beint á Síminn Sport.

Vængmaðurinn Ismaila Sarr gæti byrjað hjá Watford en hann er að snúa úr meiðslum og kom af bekknum gegn Manchester United síðasta sunnudag.

Hjá Liverpool verður James Milner aftur fjarri góðu gamni vegna vöðvavandamála en hann gæti spilað gegn Chelsea í bikarnum á þriðjudaginn.

Jordan Henderson og Xherdan Shaqiri eru enn á meiðslalistanum hjá Liverpool.

Watford er í fallsæti en liðið er án sigurs í fimm úrvalsdeildarleikjum.

Liverpool, sem er með 22 stiga forystu á toppi deildarinnar, er ósigrað í síðustu átta deildarviðureignum gegn Watford.

Á meðfylgjandi mynd má sjá líkleg byrjunarlið fyrir morgundaginn, að mati Guardian.
Athugasemdir
banner
banner