28.03.08 - 14:04
Hafliði Breiðfjörð
Barry Smith: Hélt að það væri frágengið að ég kæmi í Val

Barry Smith í búningi Vals síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Barry Smith í búningi Vals síðastliðið sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn skoski, Barry Smith, sagði í samtali við Fótbolta.net í dag að hann hafi talið frágengið að hann myndi spila með Val í sumar en Ótthar Edvardsson yfirmaður afrekssviðs hjá Val sagði við Morgunblaðið í dag að óvíst væri hvort Smith léki með Val í sumar. ,,Ég hélt að þetta væri frágengið," sagði Barry Smith í samtali við Fótbolta.net í dag.
Smith ætlar nú að hafa samband við Val og sjá hverju sætir en hann hafði fyrr í vikunni staðfest við Fótbolta.net að hann hafi gert samkomulag við Val um að leika með þeim í sumar og að hann ætti aðeins eftir að skrifa undir samninginn við félagið sem átti að gilda út tímabilið og svo hæfust viðræður um framlengingu eftir það.
Smith hefur verið meiddur á ökkla og í Morgunblaðinu í dag sagði Ótthar að meiðslin væru ein af ástæðum þess að ekki væri ákveðið hvort samið yrði við hann að nýju.
Barry Smith hefur leikið með Val undanfarnar tvær leiktíðir þar sem hann hefur átt fast sæti í hjarta varnar liðsins. Hann hefur leikið með Morton í skosku 1. deildinni í vetur og átti í viðræðum við FH um að ganga til liðs við þá í febrúar en FH-ingar ákváðu svo að leita á önnur mið.
Sjá einnig:
Barry Smith spilar með Val í sumar (Staðfest)