Jón Dagur Þorsteinsson er fyrirliði íslenka U21 liðsins. Hann fór fyrir sínu liði í dag þegar liðið lá gegn Danmörku í öðrum leik riðilsins í lokakeppni EM.
Jón Dagur fékk gula spjaldið fyrir viðskipti sín við Victor Nelsson á 25. mínútu leiksins, Jón ákvað að láta finna fyrir sér og uppskar gula spjaldið og Victor var einnig færður til bókar.
Jón Dagur fékk gula spjaldið fyrir viðskipti sín við Victor Nelsson á 25. mínútu leiksins, Jón ákvað að láta finna fyrir sér og uppskar gula spjaldið og Victor var einnig færður til bókar.
Það voru ekki einu viðskipti Jóns Dags við dönsku leikmennina því hann lét Nikolai Rohde Laursen heyra það eftir að sá danski henti sér niður.
Myndirnar skemmtilegu má sjá hér að neðan en þær eru birtar með samþykki ljósmyndara.
Athugasemdir