Úrvalslið fyrstu umferðar HM - Ógnvænlegir sóknarmenn

Lionel Messi er að sjálfsögðu í liðinu.

Mynd: EPA

Kylian Mbappe.

Mynd: EPA

Erling Haaland.

Mynd: EPA

Yan Diomande.

Mynd: EPA

Yasin Ayari.

Mynd: EPA

Ayyoub Bouaddi.

Mynd: EPA

Lionel Messi er að sjálfsögðu í liðinu.

Mynd: EPA
Fyrsta umferðin í riðlakeppni HM er að baki og Fótbolti.net hefur valið sérstakt úrvalslið eftir hana. Valið var svo sannarlega ekki auðvelt enda margir sem gera tilkall

Lionel Messi er að sjálfsögðu í liðinu og er leikmaður fyrstu umferðar eftir að hafa skorað öll þrjú mörk Argentínu í 3-0 sigri gegn Alsír. Messi er hluti af ógnvænlegum sóknarkrafti úrvalsliðsins.
Kylian Mbappe varð markahæsti landsliðsmaður Frakka frá upphafi þegar hann skoraði þrennu í 3-1 sigri gegn Senegal. Dayot Upamecano er einnig í úrvalsliðinu.
Erling Haaland skoraði tvö mörk fyrir Noreg í 4-1 sigri gegn Írak og önnur Skandinavíuþjóð, Svíþjóð, á einnig fulltrúa í liðinu. Það er Yasin Ayari sem skoraði tvennu í 5-1 sigri gegn Túnis.
Hinn eftirsótti 19 ára gamli Yan Diomande átti frábæran leik þegar Fílabeinsströndin vann Ekvador 1-0. Hinn eldsnöggi Wilfried Singo fær líka sæti í úrvalsliðinu.
Ayyoub Bouaddi, 18 ára gamall leikmaður Lille, stýrði miðsvæðinu þegar Marokkó gerði 1-1 jafntefli gegn Brasilíu. Hrikalega spennandi leikmaður.
Harry Souttar, leikmaður Leicester, nýtti hraða sinn og kraft vel í vörn Ástralíu sem vann frábæran 2-0 sigur gegn Tyrklandi.
Fulltrúi Bandaríkjanna er vinstri bakvörðurinn Antonee Robinson, bakvörður Fulham, sem var eins og rennihurð upp og niður kantinn í 4-1 sigri gegn Paragvæ.
Aldurforseti liðsins er hinn 40 ára gamli markvörður Grænhöfðaeyja, Vozinha. Hann var maður leiksins í markalausu jafntefli gegn Spáni. Ein óvæntustu úrslit HM sögunnar.
Þjálfari liðsins er svo Thomas Tuchel en England vann 4-2 sigur gegn Króatíu.
Varamannabekkur:
Mohammed Al Owais (m) - Sádi-Arabía
Ramin Rezaeian - Íran
Amir Murillo - Panama
Jordan Bos - Ástralía
Pico Lopes - Grænhöfðaeyjar
Abdulelah Al-Amri - Sádi-Arabía
Weston McKennie - Bandaríkin
Emam Ashour - Egyptaland
Hwang In-beom - Suður-Kórea
Elijah Just - Nýja-Sjáland
Folarin Balogun - Bandaríkin
Harry Kane - England
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

Kylian Mbappe.

Mynd: EPA

Erling Haaland.

Mynd: EPA

Yan Diomande.

Mynd: EPA

Yasin Ayari.

Mynd: EPA

Ayyoub Bouaddi.

Mynd: EPA

Antonee Robinson.

Mynd: EPA

Dayot Upamecano.

Mynd: EPA

Harry Souttar.

Mynd: EPA

Wilfried Singo.

Mynd: EPA

Vozinha.

Mynd: EPA

Thomas Tuchel.

Mynd: EPA




