Fotbolti.net
18.06.26 - 21:25
Andri

Einar Guðna: Við vorum klárlega betra liðið í þessum leik

Auglýsing
Einar Guðnason þjálfari Víkings

Einar Guðnason þjálfari Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Þróttur og Víkingur áttust við í 8-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna í dag. Leikurinn endaði með 1-0 sigri Þróttara sem skýtur þeim í undanúrslitin. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Einar Guðnason eftir svekkjandi tap.
Einar var svekktur eftir leikinn og taldi sitt lið hafa verið sterkari aðilann á vellinum.

„Þetta var mjög svekkjandi. Við vorum klárlega betra liðið í þessum leik, en svona er fótboltinn.“

Aðspurður út í fjarveru Freyju úr byrjunarliðinu sagði Einar að veikindi hefðu verið ástæðan. Hann greindi jafnframt frá því að fleiri leikmenn hefðu verið frá vegna veikinda og meiðsla.

„Freyja var veik í dag. Hafdís líka og Ísfold sleit krossband í síðasta leik. Helena er svo með rifbeinsbrot. Það er leiðinlegt að missa leikmenn í svona alvarleg meiðsl.“

Þrátt fyrir að Freyja hafi misst af leiknum telur Einar ekki ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu hennar fyrir komandi verkefni.

„Nei, ég reikna nú ekki með því. Ég reikna með að hún verði bara vonandi klár í næsta leik. Við ætlum bara að sjá hvernig næstu dagar líða.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.