HM: Sneggsta mark mótsins skildi liðin að

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Skotland 0-1 Marokkó
0-1 Ismael Saibari ('2 )
0-1 Ismael Saibari ('2 )
Marokkó er á toppnum í C-riðli eftir sigur á Skotum á HM í kvöld.
Marokkó fékk draumabyrjun en Ismael Saibari fékk sendingu inn fyrir vörn Skota frá Brahim Diaz og skoraði með föstu skoti úr þröngu færi eftir sjötíu sekúndur. Sneggsta mark keppninnar til þessa.
Saibari byrjar mótið mjög vel en hann markið í 1-1 jafntefli gegn Brasilíu í fyrstu umferð. Hann var nálægt því að bæta við öðru marki tíu mínútum síðar en boltinn rétt framhjá.
Marokkó var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en John McGinn fékk besta færi skota undir lokin en skotið vel yfir.
Skotar vildu fá vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik þegar McGinn féll í teignum en ekkert dæmt. Stuttu síðar átti Saibari skot í slá hinu megin.
Skotar vildu fá aðra vítaspyrnu undir lokin þegar Scott McTominay féll í teignum en aftur var ekkert dæmt. Skotar reyndu hvað þeir gátu að jafna metin en það tókst ekki og Marokkó fór með sigur af hólmi.
Brasilía getur jafnað Marokkó á toppnum með fjögur stig með sigri á Haíti klukkan hálf eitt í nótt. Skotland er með eitt stig og Haíti án stiga.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!