Toppliðið vill Anderson - Erkifjendur á eftir leikmanni Real Madrid - Lewandowski og Greenwood til Juve?
   lau 28. mars 2026 14:37
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikarinn: Sigurður Egill allt í öllu í góðum sigri Þróttar
Sigurður Egill átti frábæran leik
Sigurður Egill átti frábæran leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Hannes skoraði mikilvægt þriðja mark heimamanna
Baldur Hannes skoraði mikilvægt þriðja mark heimamanna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. 3 - 1 Víkingur Ó.
1-0 Adam Árni Róbertsson ('18 )
2-0 Aron Snær Ingason ('55 )
2-1 Naim Aaras EL Hmaidi ('59 )
3-1 Baldur Hannes Stefánsson ('65 )
Lestu um leikinn

Þróttur R. er kominn áfram í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir nokkuð sannfærandi 3-1 sigur á Víkingi Ólafsvík á AVIS-vellinum í Laugardal í dag.

Adam Árni Róbertsson skoraði fyrir Þróttara á 18. mínútu eftir fyrirgjöf frá vinstri og voru heimamenn líklegir til að bæta við áður en hálfleikurinn var úti.

Nokkuð þægilegt en Ólsarar veittu þeim mótstöðu í byrjun síðari hálfleiks áður en heimamenn náðu aftur betri tökum á leiknum.

Aron Snær Ingason tvöfaldaði forystuna á 55. mínútu með skemmtilegum töktum. Sigurður Egill Lárusson átti langa sendingu þvert yfir völlinn á Aron, sem náði góðri snertingu áður en hann setti boltann snyrtilega framhjá Jóni Kristni Elíassyni í markinu.

Þróttarar gáfu Ólsurum líflínu er þeir reyndu að spila úr vörninni, en sendingin fór beint á Allysson Da Silva. Hann reyndi skot sem Aron Dagur Birnuson varði út á Naim El Hmaidi sem minnkaði muninn í eitt mark.

Heimamenn voru þó fljótir að drepa vonir Ólsara. Aftur var það Sigurður Egill með frábæran bolta og í þetta sinn inn á teiginn á fyrirliðann Baldur Hannes Stefánsson sem stangaði hann í netið.

Eftir það voru Þróttarar líklegri til að bæta við en létu sér nægja þrjú mörk.

Þróttur er kominn áfram í 32-liða úrslit bikarsins þar sem það mun heimsækja ÍBV til Vestmannaeyja.
Slapp
Athugasemdir
banner