Byrjunarlið Vals og Víkings: Hólmar kominn úr banni - Valdimar og Vatnhamar komnir til baka eftir meiðsli


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leikur Vals og Víkings í 4. umferð Bestu deildar karla hefst á eftir klukkan 19:15. Byrjunarliðin hafa verið byrt og má sjá þau hér fyrir neðan.
Srdjan Tufegdzic þjálfari Valsara gerir tvær breytingar á liði sínu sem vann KA 3-1 í síðustu umferð. Aron Jóhannson kemur inn í liðið auk Hólmars Arnar Eyjólfssonar sem kemur til baka eftir leikbann. Orri Hrafn Kjartansson sest á bekkinn en Markus Lund Nakkim er ekki í hóp.
Sölvi Geir Ottesen þjálfari Víkinga gerir þrjár breytingar á sínu liði sem tapaði fyrir Aftureldingu 1-0 í síðustu umferð. Gunnar Vatnhamar og Valdimar Þór Ingimundarsson koma til baka eftir meiðsli og eru í byrjunarliðinu, en einnig fær Stígur Diljan Þórðarson tækifærið í byrjunarliðinu. Viktor Örlygur Andrason, Daníel Hafsteinsson og Karl Friðleifur Gunnarsson fá sér allir sæti á bekknum.
Byrjunarlið Valur
- 25. Stefán Þór Ágústsson (m)
- 6. Bjarni Mark Antonsson
- 7. Aron Jóhannsson
- 9. Patrick Pedersen
- 10. Jónatan Ingi Jónsson (f)
- 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
- 15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
- 17. Lúkas Logi Heimisson
- 20. Orri Sigurður Ómarsson
- 22. Marius Lundemo
- 22. Birkir Heimisson
Byrjunarlið Víkingur R.
- 1. Ingvar Jónsson (m)
- 2. Sveinn Gísli Þorkelsson
- 6. Gunnar Vatnhamar
- 7. Erlingur Agnarsson
- 9. Helgi Guðjónsson
- 10. Gylfi Þór Sigurðsson
- 11. Daníel Hafsteinsson
- 20. Tarik Ibrahimagic
- 24. Davíð Örn Atlason
- 25. Valdimar Þór Ingimundarson
- 77. Stígur Diljan Þórðarson
