Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 20:10
Ívan Guðjón Baldursson
Fimm mörk í rosalegum fyrri hálfleik
Mynd: EPA
Stórveldi PSG og FC Bayern eru að spila fyrri undanúrslitaleik sinn í Meistaradeildinni þessa stundina og er staðan 3-2 eftir ótrúlegan fyrri hálfleik.

Hægt er að segja að svissneski dómarinn Sandro Schärer sé búinn að vera í aðalhlutverki í kvöld þar sem tvö af mörkunum fimm komu eftir nokkuð umdeilda vítaspyrnudóma.

Fyrst fiskaði Luis Díaz vítaspyrnu eftir samskipti við Willian Pacho innan vítateigs og skoraði Harry Kane örugglega af vítapunktinum.

Khvicha Kvaratskhelia jafnaði metin með glæsilegri afgreiðslu áður en Joao Neves náði forystunni, en hinn feykiöflugi Michael Olise jafnaði metin á ný svo staðan var orðin 2-2.

Áfram var mikið fjör í leiknum og dæmdi Schärer aðra vítaspyrnu seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks fyrir hendi. Sá dómur er sérstaklega umdeildur og voru íslensku sérfræðingarnir í settinu hjá Sýn Sport Viaplay steinhissa.
Slapp
banner
banner