28.05.06 - 18:17
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Alexander Farnerud til Stuttgart (Staðfest)

Alexander Farnerud

Mynd: Getty Images

Alexander Farnerud

Mynd: Getty Images
Stuttgart gengu í dag frá kaupunum á hinum sænska Alexander Farnerud. Farnerud er miðjumaður kemur frá Strasborug í Frakklandi og skrifaði undir fjögurra ára samning við þýska liðið.
Farnerud var fyrr í þessum mánuði 22. ára gamall en hann kom árið 2003 til Strasbourg frá sænska liðinu Landskrona og er hann þriðju kaup Stuttgart í sumar.
Áður höfðu Stuttgart fengið til sín Antonio da Silva frá íslandsvinunum í Mainz og Roberto Hilbert frá 2. deildarliðinu Greuther Furth. Þess má svo til gamans geta að landsliðsmaðurinn Pontus Farnerud, bróðir Alexander, er ennþá hjá Strasborug en hann hefur meðal annars spilað með Monaco.