28.05.07 - 08:00
Hafliði Breiðfjörð
Atli Viðar, Ólafur Páll og Heimir Snær í Fjölni (Staðfest)

Atli Viðar Björnsson er farinn í Fjölni.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Ólafur Páll Snorrason sem hér fagnar Íslandsmeistratitli í fyrra fór einnig í Fjölni.

Fjölnismenn hafa fengið gríðarlega góðan liðsstyrk fyrir komandi baráttu í 1. deild karla en FH hefur lánað þeim þrjá sterka leikmenn.
Leikmennirnir eru þeir Atli Viðar Björnsson, Ólafur Páll Snorrason og Heimir Snær Guðmundsson sem allir hafa góða reynslu úr Landsbankadeildinni en þetta staðfesti Ásmundur Arnarsson þjálfari Fjölnis í samtali við Fótbolta.net.

Þeir koma allir á eins mánaðar lánssamningi til að byrja með en verða væntanlega áfram hjá liðinu nema FH meiðsli setji strik í reikninginn hjá FH og Íslandsmeistararnir þurfi að kalla einhvern þeirra til baka.
Leikmennirnir mættu allir á æfingu hjá liðinu nú á föstudag og eru allir klárir í slaginn í næsta leik liðsins gegn KA 7. júní næstkomandi en Atli Viðar sem hefur verið að jafna sig eftir krossbandsmeiðsli verður þó ekki klár til að leika í byrjunarliði í þeim leik en verður líklega á bekknum.
Auk þeirra þriggja eru þrír leikmenn í liði Fjölnis sem eru uppaldir hjá FH. Það eru þeir Magnús Ingi Einarsson, Sigmundur Pétur Ástþórsson og Tómas Leifsson sem allir voru í byrjunarliði Fjölnis í síðasta leik gegn Stjörnunni.
Ólafur Páll Snorrason er 25 ára gamall hægri kantmaður. Hann lék 16 leiki með FH í Landsbankadeildinni á síðustu leiktíð en náði ekki að skora. Sumarið 2005 skoraði hann þrjú mörk í 12 leikjum og átti fjölda stoðsendinga.
Atli Viðar Björnsson er 27 ára gamall framherji sem hefur verið hjá FH síðan árið 2001. Hann hefur leikið 87 leiki í eild og bikar með liðinu og skorað í þeim 26 mörk.
Heimir Snær er 23 ára gamall og lék tvo leiki með FH í Landsbankadeildinni í fyrra. Hann lék með ÍBV sumarið 2005 og spilaði þá 12 leiki í deild og 3 í bikar. Hann er miðjumaður.