Fotbolti.net
28.05.21 - 21:49
Hafþór Bjarki Guðmundsson

Gústi Gylfa: Okkar mistök að halda að þetta væri komið

Auglýsing
Gústi Gylfa: Okkar mistök að halda að þetta væri komið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin
„Fyrri hálfleikurinn var í jafnvægi og við sköpuðum okkur tvö til þrjú dauðafæri áður en við skorum, og skorum svo annað í kjölfarið og förum 2-0 í hálfleik," sagði Ágúst Þór Gylfason þjálfari Gróttu eftir 3 - 3 jafntefli við heimamenn á Selfossi í dag.
„Við náðum svo að bæta við þriðja markinu fljótlega í seinni hálfleik á móti sterkum vindi en þá fannst mér þetta nokkurn veginn komið og okkar mistök að halda það."

„Þetta var allt undir kontrol hjá okkur þá en við hleypum þeim inn í leikinn þegar hálftími er eftir og þeir skora frekar ódýrt mark á okkur."

„Þá hefst havarí og boltinn upp í loftið og barátta. Við gefum þeim smá möguleika og blóð á tennurnar. Þeir nýta sér það vel og ná að jafna leikinn 3-3. "

„Ég held að eftir á að hyggja hefðum við átt að vera búnir að klára leikinn með 4-5 mörkum en þetta var erfitt eftir að við hleyptum þeim inn í leikinn."


En getur Gústi sætt sig við eitt stig ú þessum leik?

„Eftir á að hyggja gerum við það en auðvitað viljum við sigra leiki. Selfoss er baráttulið með skeinuhætta leikmenn út um allan völl og munu taka fullt af stigum í sumar. Við vildum klára leikinn en því miður náðum við bara einu stigi."

Nánar er rætt við Gústa í sjónvarpinu að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.