Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fim 28. maí 2026 17:45
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Fúlir út í ÍA - „Þá er búið að taka risaákvörðun sem fleiri heldur en þjálfarinn þurfa að bera ábyrgð á"
ÍA hefur farið hægt af stað.
ÍA hefur farið hægt af stað.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lárus Orri er þjálfari liðsins.
Lárus Orri er þjálfari liðsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Þórarinsson var fenginn til ÍA í vetur.
Guðmundur Þórarinsson var fenginn til ÍA í vetur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir Andri og Sverrir voru hrifnir af því að fá inn mann með tengingu við Skagann.
Þeir Andri og Sverrir voru hrifnir af því að fá inn mann með tengingu við Skagann.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Böðvar Böðvarsson kom frá FH.
Böðvar Böðvarsson kom frá FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gengi ÍA á tímabilinu hefur verið undir væntingum í sumar en liðið situr í 8. sæti deildarinnar með níu stig eftir átta leiki. Eftir 2-2 jafntefli í síðustu umferð gegn botnliði ÍBV voru Skagamennirnir, frændurnir Andri Júlíusson og Sverrir Mar Smárason gestir í Útvarpsþættinum Fótbolta.net síðasta laugardag og ræddu m.a. um ÍA.

„Þú ert með Eyjagæja sem er ekki sama, þjálfarinn búinn að henda inn tveimur útlendingum úr hópnum og hendir inn tveimur Eyjagæjum sem eru að spila fyrir því sem þeir vilja standa fyrir og þeir gefast ekkert upp. Það skiptir ofboðslega miklu máli," sagði Andri um endurkomu ÍBV gegn ÍA, en ÍA hafði komist í 2-0 í leiknum.

„Á móti eru tveir Skagamenn í byrjunarliðinu og einn á bekknum. Þetta er mjög skrítið, mér finnst þetta lið vera að missa dálítið tenginguna við samfélagið og bæinn. Það er andinn sem maður finnur, og mér finnst það leiðinlegt," sagði Sverrir.

Skagamenn voru virkir á markaðnum í vetur og sóttu stóra bita. Gísli Eyjólfsson og Guðmundur Þórarinsson komu heim til Íslands úr atvinnumennsku og Böðvar Böðvarsson kom frá FH.

„Ég er alveg pínu fúll út í þetta. Mér fannst frábært að fá Gísla Eyjólfs inn, hann rífur alla með sér, er kröftugur, stjórnar og stýrir," sagði Andri. „Hann er að koma inn með tengingu við bæinn, flytur upp á Skaga, er með konu af Skaganum og það er Skagatenging," skaut Sverrir inn í.

„Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar (fyrir leikinn gegn ÍBV), það er að koma ungur strákur í markið (Jón Sölvi Símonarson), Jón Gísli í banni og Brynjar Óðins, ungur strákur fæddur 2009, fengi sénsinn í liðinu. Ég hugsaði ef ekki þá, hvenær á Brynjar þá að fá sénsinn? Hann spilaði fullt á undirbúningstímabilinu. Svo kemur að leikskýrslu og þá var Gísli Laxdal kominn í hægri bakvörð," sagði Andri með vonbrigðartón. Hann hélt svo áfram: „Svo reyndar skoraði Gísli Laxdal þetta draumamark og er fínn í leiknum. En við þurfum að vita hvað við ætlum að vera. Ætlum við að halda áfram að búa til leikmenn og treysta ungum leikmönnum, eða ætlum við að fara í að stefna á Evrópukeppni og eyða fullt af peningum? Ég held það sé ekkert launungarmál að sú ákvörðun hafi verið tekin, annars væri ekki verið að keyra á þennan mannskap."

Sverrir tók undir með Andra. „Það var tekin stefnubreyting í vetur. Það er ákveðið að stefna á þessu efstu sæti og reyna að fá peninginn þannig til baka. Við eigum fullt af pening, það er ekkert leyndarmál, fáum fullt af pening inn fyrir Hákon (Arnar Haraldsson - þegar hann er seldur milli félaga erlendis) og staðan er góð. Ég hefði viljað nota peninginn í að búa til sjálfbært starf til lengri tíma; fá inn yngri stráka, spila á fleiri uppöldum strákum, til þess að geta selt fleiri leikmenn út og haldið áfram að tikka inn þannig. Þessir sem við fáum inn eru ekki söluvörur og á meðan erum við heldur ekki að undirbúa menn til að koma inn. Það er það sem ég er fúll út í."

„Ef þetta gengur ekki, þá er búið að taka risaákvörðun sem fleiri heldur en þjálfarinn þurfa að bera ábyrgð á,"
sagði Sverrir og á þá við menn sem stýra félaginu, að þeir taki ábyrgð ef illa fer.

„Ástæðan fyrir því að við eigum nóg af peningum er sú að fullt af leikmönnum hafa verið seldir út. Ástæðan fyrir því að Gabríel Snær (Gunnarsson) er seldur út er af því að hann fékk sénsinn í fyrra og var góður þó að hann hafi bara skorað eitt mark. Liðin úti horfa í þetta. Þú verður að spila ungum strákum," sagði Andri sem var ekki hrifinn af því hversu fáir leikmenn á 2. flokks aldri byrjuðu í 8. umferð Bestu deildarinnar og má sjá hverjir það voru hér að neðan.

Leikmenn á 2. flokks aldri sem byrjuðu í 8. umferð)
Davíð Helgi Aronsson (2007 - Keflavík á láni frá Víkingi)
Ásbjörn Líndal Arnarsson (2008 - Þór)
Einar Freyr Halldórsson (2008- Þór)
Gils Gíslason (2007- FH)
Róbert Hugi Sævarsson (2010 - FH)
Benjamín Bæring Þórsson (2008 - FH)
Jón Sölvi Símonarson (2007 - ÍA)
Róbert Elís Hlynsson (2007 - ÍBV á láni frá KR)
Sigurður Breki Kárason (2009 - KR)
Útvarpsþátturinn - Blikar kveikja á sér en rýr uppskera á Akranesi
Slapp
banner