Fotbolti.net
28.06.06 - 16:09
Yngvi Þ. Eysteinsson

Glen Johnson lánaður til Portsmouth (Staðfest)

<b>Kominn til Portsmouth</b> - Glen Johnson

Kominn til Portsmouth - Glen Johnson

Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hafa landað Glen Johnson, varnarmanni Chelsea, en hann kemur á láni til félagsins. Þessi 21 árs gamli leikmaður kom frá West Ham til Chelsea árið 2003 fyrir 6 milljónir punda en hann hefur fengið lítið að spila með Chelsea undanfarin misseri.
Johnson sagði að hann vildi spila reglulega til þess að auka möguleika sína á því að komast í enska landsliðið: ,,Þetta er frábært tækifæri fyrir mig til þess að fá að spila reglulega og vekja athygli á mér," sagði Johnson í samtali við opinbera vefsíðu Portsmouth. ,,Félagið er mjög metnaðarfullt núna og ég hlakka til að spila með þeim."

Johnson hefur spilað 68 leiki fyrir Chelsea en hann spilaði aðeins 8 leiki á síðasta tímabili. Harry Redknapp, framkvæmdarstjóri Portsmouth, hefur margoft sagt að hann sé mikill aðdáandi leikmannsins og lýsti hann yfir ánægju sinni með að vera búinn að næla í hann.

,,Hann er frábær varnarmaður og hann verður bara betri og betri," sagði Redknapp og hélt áfram: ,,Þetta er frábært að vera búnir að fá hann. Hann á mikla framtíð fyrir sér og ég held að öll félög í ensku úrvalsdeildinni væru til í hann."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.