PSG tilbúið að borga metfé fyrir Yamal - Man Utd í viðræðum við De Ligt
   fös 28. júní 2024 13:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Landsliðshópurinn - Bryndís Arna snýr til baka
Icelandair
Bryndís Arna Níelsdóttir.
Bryndís Arna Níelsdóttir.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari A-landsliðs kvenna, hefur valið hóp fyrir tvo síðustu leikina í undankeppni EM 2025 í júlí.

Ísland mætir Þýskalandi á Laugardalsvelli föstudaginn 12. júlí og Póllandi ytra þriðjudaginn 16. júlí. Ísland er í öðru sæti þegar tveir leikir eru eftir af undankeppninni. Tvö efstu liðin fara áfram beint í lokakeppni EM 2025.

Það eru tvær breytingar frá upprunalega hópnum í síðasta verkefni. Hafrún Rakel Halldórsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir koma inn fyrir Ásdísi Karen Halldórsdóttur og Ólöfu Sigríði Kristinsdóttur.

Markverðir:
Telma Ívarsdóttir - Breiðablik - 11 leikir
Fanney Inga Birkisdóttir - Valur - 5 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Bayern Munich - 11 leikir

Aðrir leikmenn:
Guðný Árnadóttir - Kristianstads DFF - 30 leikir
Ingibjörg Sigurðardóttir - MSV Duisburg - 63 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich - 126 leikir, 11 mörk
Guðrún Arnardóttir - FC Rosengard - 39 leikir, 1 mark
Natasha Moraa Anasi - SK Brann - 5 leikir, 1 mark
Kristín Dís Árnadóttir - Bröndby IF
Sandra María Jessen - Þór/KA - 42 leikir, 6 mörk
Berglind Rós Ágústsdóttir - Valur - 10 leikir, 1 mark
Alexandra Jóhannsdóttir - ACF Fiorentina - 45 leikir, 5 mörk
Hildur Antonsdóttir - Fortuna Sittard - 16 leikir, 2 mörk
Katla Tryggvadóttir - Kristianstads DFF
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Bayer Leverkusen - 41 leikur, 9 mörk
Selma Sól Magnúsdóttir - 1. FC. Nürnberg - 39 leikir, 4 mörk
Amanda Jacobsen Andradóttir - Valur - 19 leikir, 2 mörk
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby IF - 11 leikir, 1 mark
Sveindís Jane Jónsdóttir - VfL Wolfsburg - 38 leikir, 10 mörk
Hlín Eiríksdóttir - Kristianstads DFF - 38 leikir, 6 mörk
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - Nordsjælland - 1 leikur
Diljá Ýr Zomers - OH Leuven - 15 leikir, 2 mörk
Bryndís Arna Níelsdóttir - Växjö DFF - 6 leikir, 1 mark
Landslið kvenna - Undankeppni EM
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þýskaland 4 4 0 0 13 - 5 +8 12
2.    Ísland 4 2 1 1 7 - 5 +2 7
3.    Austurríki 4 1 1 2 7 - 7 0 4
4.    Pólland 4 0 0 4 3 - 13 -10 0
Athugasemdir
banner
banner
banner