Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 16:30
Brynjar Ingi Erluson
Ætla að leggja fram 85 milljóna punda tilboð í Luis Díaz
Mynd: EPA
Sádi-arabíska félagið Al Nassr hefur lýst hefur áhuga á því að kaupa kólumbíska vængmanninn Luis Díaz frá Liverpol og er reiðubúið að greiða 85 milljónir punda. Þetta kemur fram í arabíska miðlinum Okaz.

Díaz er 28 ára gamall og var að ljúka frábæru tímabili með Liverpool sem varð Englandsmeistari í 20. sinn í sögu félagsins.

Kólumbíumaðurinn skoraði 17 mörk og gaf 8 stoðsendingar í öllum keppnum, en frammistaða hans hefur vakið athygli fjölmargra félaga, helst í Sádi-Arabíu og á Spáni.

Í miðlinum Okaz kemur fram að Al Nassr ætli sér að leggja fram 85 milljóna punda tilboð í Díaz.

Liverpool hefur til þess sagt að Díaz sé ekki til sölu en markaðurinn virkar yfirleitt þannig að allir séu falir fyrir rétt verð og gætu 85 milljónir verið nóg til að sannfæra Liverpool.

Díaz kom til Liverpool frá Porto í janúar fyrir þremur árum og er samningsbundinn til 2027.
Athugasemdir
banner