Skoraði fyrsta markið á hárréttum tímapunkti - „Búinn að dreyma um þetta augnablik“
Auglýsing

Fagnar marki sínu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ógeðslega mikill léttir að sjá hann inni.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnar marki sínu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Geðveikt, manni er búið að dreyma um þetta augnablik í mörg ár. Loksins fékk það að koma, gott að það sé í undanúrslitum í bikarnum,“ sagði Gabríel Snær Hallsson eftir að hafa skorað fyrsta mark sitt fyrir meistaraflokk Breiðabliks og fyrsta mark liðsins í 3-0 sigri á Víkingi í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 0 Víkingur R.
„Ég sá að Ágúst var kominn í gegn og vitandi af hraðanum hans vissi ég að ég væri að fá hann í 'cutbackið' og fékk hann þar. Ég ætlaði að setja boltann á rammann og sá boltann leka inn. Markmaðurinn var með hann en gott að sjá hann inni. Ógeðslega mikill léttir að sjá hann inni,“ sagði Gabríel og var hann spurður út í gang leiksins.
„Fyrri hálfleikurinn var mjög fínn, vorum að komast í færi. Í seinni hálfleik náðum við loksins að nýta þessi færi. Mér fannst við vera að spila vel og við hefðum getað skorað fleiri. Þeir spiluðu líka vel en gott hjá okkur að ná að vinna þetta,“ sagði Gabríel að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.