Fotbolti.net
28.06.26 - 15:57
Brynjar Ingi Erluson

Mjólkurbikarinn: Blikar hefndu sín á Víkingum og eru komnir í úrslit

Gabríel Snær fagnar marki sínu á Kópavogsvelli

Gabríel Snær fagnar marki sínu á Kópavogsvelli

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Breiðablik 3 - 0 Víkingur R.
1-0 Gabríel Snær Hallsson ('77 )
2-0 Davíð Ingvarsson ('91 )
3-0 Ágúst Orri Þorsteinsson ('94 )
Lestu um leikinn
Breiðablik er komið í úrslit Mjólkurbikars karla eftir 3-0 sigur á Víkingi á Kópavogsvelli í kvöld. Blikar náðu þar fram hefndum eftir 4-1 tap gegn Víkingum í Bestu deildinni á fimmtudag.

Margar breytingar voru gerðar á báðum liðum frá þeim leik. Ívar Örn Árnason sneri aftur úr leikbanni og kom inn í lið Blika ásamt Kristófer Inga Kristinssyni, Davíð Ingvarssyni og Andra Rafni Yeoman. Gylfi Þór Sigurðsson byrjaði hins vegar á bekknum hjá Víkingum.

Víkingar voru frábærir gegn Blikum um helgina og byrjuðu leikinn í kvöld ágætlega. Óskar Borgþórsson átti fyrirgjöf á Helga Guðjónsson á 7. mínútu en Anton Ari Einarsson varði vel.

Það kom upp vafaatvik sex mínútum síðar þegar Jóhann Kristinn Bjarnason tók á móti boltanum í teig Víkinga og boltinn skoppaði þaðan í höndina á honum. Blikar vildu fá vítaspyrnu en Sigurður Hjörtur Þrastarson, dómari leiksins, dæmdi ekkert.

Hitinn færðist í leikinn í kjölfarið og leikmenn tókust aðeins á áður en leikurinn hélt áfram. Víkingar fengu tvær tilraunir á næstu mínútum áður en Ágúst Orri Þorsteinsson átti skalla rétt framhjá marki Víkinga.

Víkingar fengu besta færi fyrri hálfleiksins þegar Viktor Örlygur Andrason þræddi Jóhannes í gegn. Hann var kominn einn gegn Antoni Ara en markvörður Blika gerði vel og varði.

Liðin skiptust á færum áður en flautað var til hálfleiks en staðan var enn markalaus.

Í síðari hálfleik átti Óskar ágætan skalla sem Anton Ari varði. Hinum megin átti Gabríel Snær Hallsson sendingu sem fór af Daníel Hafsteinssyni og stefndi í bláhornið en Aron Snær Friðriksson var vel á verði í marki Víkinga.

Þegar þrettán mínútur voru eftir náðu Blikar loksins að brjóta ísinn. Þeir keyrðu hratt fram völlinn, Ágúst Orri kom boltanum á Gabríel sem stóð rétt fyrir utan vítateiginn og lét vaða. Aron Snær náði ekki að halda skotinu frá markinu og boltinn endaði í netinu.

Markið var gríðarlega mikilvægt en Víkingar pressuðu á lokamínútunum. Þeir komu boltanum í netið þegar Gunnar Vatnhamar stangaði boltann fyrir á Svein Gísla Stefánsson sem stýrði honum í markið, en markið var dæmt af vegna rangstöðu á Gunnar í aðdragandanum.

Í uppbótartíma gerðu Blikar svo út um leikinn með tveimur mörkum. Davíð Ingvarsson nýtti sér mistök Víkinga sem töpuðu boltanum á hættulegum stað, keyrði að marki og setti boltann snyrtilega í netið. Ágúst Orri gerði þriðja markið er hann óð upp hægri vænginn og kláraði frábærlega.

Blikar svöruðu tapinu í deildinni með sterkri frammistöðu og eru komnir í bikarúrslit þar sem þeir mæta Aftureldingu eða Fylki.

Íslandsmeistarar Víkings eru hins vegar úr leik og geta nú einbeitt sér að deildinni og forkeppni Meistaradeildarinnar.

Þetta var jafnframt fyrsta tap Víkings í alvöru keppnisleik síðan 10. ágúst, þegar liðið tapaði 4-2 fyrir Stjörnunni í Bestu deildinni.
Það var mikill hiti í leiknum

Það var mikill hiti í leiknum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar skoruðu þrjú á lokakaflanum

Blikar skoruðu þrjú á lokakaflanum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.