Fotbolti.net
28.06.26 - 16:16
Brynjar Ingi Erluson

Sögulegur og dramatískur sigur hjá Daníelu

Daníela Dögg er komin í bikarúrslit

Daníela Dögg er komin í bikarúrslit

Canon

Mynd: Heimasíða Álasunds

Hertz
Daníela Dögg Guðnadóttir og stöllur hennar í norska liðinu Álasund eru komnar í bikarúrslit í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir dramatískan sigur á Stabæk eftir framlengdan leik.
Álasundi var ekki spáð miklu fyrir tímabilið, enda liðið nýliði í norsku úrvalsdeildinni og aðeins í annað sinn í sögu félagsins sem það leikur í efstu deild.

Liðið hefur hins vegar komið gríðarlega á óvart, bæði í deild og bikar. Það situr í öðru sæti deildarinnar með 25 stig, aðeins sjö stigum á eftir Noregsmeisturum Brann, og í dag bókaði það sæti í bikarúrslitum.

Daníela var í byrjunarliði Álasunds gegn Stabæk. Álasund tók forystuna á 32. mínútu en Stabæk svaraði aðeins fjórum mínútum síðar.

Ekki var meira skorað í venjulegum leiktíma og Daníela fór af velli á 95. mínútu í framlengingunni. Þar fór allt á flug í algjöru markaflóði og Álasund hafði að lokum betur, 4-3, og tryggði sér sæti í úrslitum.

Andstæðingurinn þar verður Brann, sem Diljá Ýr Zomers leikur með. Úrslitaleikurinn fer fram 6. september næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.