Fotbolti.net
28.06.26 - 16:53
Kári Snorrason

Sölvi: Stend við þá ákvörðun að byrja með þetta lið

Auglýsing
Frá leiknum í dag.

Frá leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Hrikalega svekkjandi úrslit. Það er aldrei að tapa í undanúrslitum, þegar þú ert kominn svona nálægt markmiðunum sem þú settir fyrir tímabil,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, í viðtali eftir 3-0 tap gegn Breiðabliki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
Lestu um leikinn: Breiðablik 3 - 0 Víkingur R.
Tapið var það fyrsta hjá Víkingi á tímabilinu. Liðið mætti Breiðabliki á fimmtudaginn síðastliðinn og vann þá 4-1 sigur. Sölvi gerði fimm breytingar á byrjunarliði sínu frá þeim leik. Hann var spurður út í hvort mistök höfðu verið gerð í liðsvalinu.

„Ég skil spurninguna vel, en ég met byrjunarliðið út frá gögnum, álagi, stöðu á leikmönnum og met út frá því hvað sé besta liðið til að vinna. Ég stend við þá ákvörðun að byrja með þetta lið. Þeir stóðu sig frábærlega vel, við vorum sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum með alla þessa leikmenn.“

„Við þurfum að dreifa mínútum á milli leikmanna og finna þá leikmenn sem eru með mesta orkustigið. Ég taldi þetta lið það besta til þess að byrja leikinn og ég stend við það.“


Þurfa að nýta tapið
Eins og áður sagði var tapið það fyrsta hjá Víkingi á tímabilinu. Sölvi var spurður hvort það væri að einhverju leyti fínt að fá jarðtengingu.

„Það er aldrei gaman að tapa, þú vilt alltaf komast hjá því. En við þurfum að nýta þetta tap eins og við gerðum í fyrra eftir tapið gegn Bröndby. Við nýttum þessa slæmu orku og breyttum henni í góða orku. Nú kemur í ljós úr hverju við erum gerðir.“
Fyrsta tap Víkings í sumar.

Fyrsta tap Víkings í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þéttsetið á Kópavogsvelli.

Þéttsetið á Kópavogsvelli.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.