Fotbolti.net
28.07.06 - 10:06
Guðmundur Dagur Ólafsson

McCarthy til Blackburn (Staðfest)

McCarthy til Blackburn (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Suður afríski sóknarmaðurinn Benni McCarthy hefur gengið til liðs við Blackburn Rovers og hefur skrifað undir 4 ára samning við félagið. McCarthy, sem er 28 ára og landsliðsmaður Suður Afríku, kemur frá Porto en áður hefur hann spilað með Ajax og Celta Vigo.
"Við reyndum að kaupa Benni fyrir 12 mánuðum og við höfum verið að eltast við hann síðan þá. Við erum hæstánægðir með að hann sé kominn til okkar," sagði John Williams, formaður Blackburn

McCarthy er þriðji framherjinn sem þjálfari Blackburn, Mark Hughes, fær til félagsins í sumar en hinir eru þeir Jason Roberts og Francis Jeffers. Blackburn ætla sér að reyna bæta árangur sinn í deildinni en í fyrra enduðu þeir í 6.sæti.

Talið er að Rovers borgi 2.5m punda fyrir McCarthy en hann hefur áður verið orðaður við Everton, Aston Villa, Middlesbrough og West Ham. Hann vann Meistaradeild Evrópu árið 2004 með Porto og hefur spilað 60 leiki fyrir Suður Afríku og skoraði í þeim 26 mörk. Hann hætti með landsliðinu eftir HM 2002 en snéri aftur fyrir tveimur árum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.