28.07.06 - 12:23
Andri Fannar Stefánsson
Nistelrooy til Madrid (Staðfest)

Hér skorar Nistelrooy gegn Real Madrid í leik liðanna í Meistaradeild Evrópu á tímabilinu 2002/2003

Mynd: Getty Images

Real Madrid hafa staðfest kaup sín á Ruud van Nistelrooy, og er hann þriðju kaup hins nýja þjálfara Real Madrid, Fabio Capello.
Hinn fyrrverandi leikmaður Manchester United ferðaðist til Spánar til þess að fara í læknisskoðun, en enn er ekki vitað kaupverðið á honum.
Hann mun leika við hlið manna eins og Ronaldo, Raul og Fabio Cannavaro á Santiago Bernabeu, leikvangi Madrid en Nistelrooy mun vera formlega kynntur sem leikmaður Real Madrid í kvöld.
Capello hefur einnig fengið til liðs við Real, Fabio Cannavaro og Emerson en Cannavaro var máttarstólpi ítalska landsliðsins þegar það vann HM nú á dögunum.
„Það er frábært að vera kominn hingað, ég er mjög ánægður með að vera kominn í einn stærsta klúbb í heimi og hér vill ég skora mikið af mörkum. Þegar Real leita eftir þjónustu þinni þá geturu skiljanlega ekki neitað því,“ sagði Nistelrooy við heimasíðu Real Madrid í dag.