Fotbolti.net
28.07.06 - 12:45
Hafliði Breiðfjörð

Jakob Spangsberg í Leikni á ný (Staðfest)

Spangsberg í leik með Val gegn Breiðablik í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar.

Spangsberg í leik með Val gegn Breiðablik í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Danski framherjinn Jakob Spangsberg er genginn í raðir Leiknismanna á ný frá Val. Spangsberg lék með Leikni á síðari hluta síðustu leiktíðar en gekk svo í raðir Valsmanna í haust.
Hann lék átta leiki með Val í Landsbankadeildinni í sumar þar af sjö sem varamaður en hann var aðeins einu sinni í byrjunarliði, gegn FH í annarri umferð. Hann kom einnig einu sinni inná sem varmaður í VISA bikarnum gegn Fjarðarbyggð. Hann var ónotaður varamaður í leik Vals gegn Bröndby í UEFA Cup í gærkvöld.

Spangsberg er kominn með leikheimild hjá Leiknismönnum og mun því leika með liðinu í 1. deildinni í kvöld er þeir mæta Víking frá Ólafsvík.

Ekki er um lánssamning að ræða heldur kaupa Leiknismann hann til baka. Jakob Spangsberg sem er 24 ára spilaði síðustu tvö tímabil með Leikni. Hann skoraði grimmt með Leiknismönnum 6 mörk í 7 leikjum í 2.deild á síðustu leiktíð . Árið 2004 skoraði hann 11 mörk í 18 leikjum í 2. deild með Leikni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.