28.07.06 - 17:08
Tómas Þór Þórðarson
Einar Þór Daníelsson í Gróttu (Staðfest)

Einar Þór búinn að færa sig yfir á Seltjarnarnesið.

Mynd: Úr einkasafni

Margfaldi Íslandsmeistarinn, atvinnu og landsliðsmaðurinn, Einar Þór Daníelson gékk í dag til liðs við Gróttu.
Einar sem ákvað að hætta að leika með KR í fyrra fékk leikheimild í dag. Hann þekkir vel til þjálfara Gróttu, Ásmund Guðna Haraldsson sem einnig leikur með liðinu og er þeirra markahæsti maður og einnig Guðjón Kristinsson.
Í samtali við Fótbolti.net í dag sagði Ásmundur að hann væri mjög ánægður að Einar hafði ákveðið að koma í Gróttu en það væri ekkert víst hvort hann mundi leika með liðinu, það væri alveg undir Einari sjálfum komið.
Hann mun hjálpa liðinu ef þeir lenda í meiðslavandræðum eða öðru en fram að því er ekkert víst. Þrátt fyrir að vera ekki að leika knattspyrnu þessa daganna heldur Einar Þór sér í formi með því að hlaupa fleiri kílómetra á dag og væri vel tilbúinn í boltann.
,,Þetta er mikill fengur fyrir félagið að sjálfsögðu. Einar er margfaldur Íslandsmeistari og hefur leikið í atvinnumennsku. Hann er toppleikmaður og fyrst og fremst toppmaður," sagði Ásmundur við Fótbolti.net í dag.