28.07.06 - 19:39
Hafliði Breiðfjörð
Dennis Siim í FH (Staðfest)

Siim í leik með FH gegn Grindavík á síðustu leiktíð.

Mynd: Boltamyndir

Danski miðvallarleikmaðurinn Dennis Siim er genginn í raðir FH á ný en þetta er staðfest á vefsíðu stuðningsmanna félagsins, FHingar.net nú í kvöld. Siim gekkst undir læknisskoðun hjá Emil Sigurðssyni lækni liðsins nú í dag og í framhaldi af því skrifaði hann undir samning sem gildir út árið 2008.
Ekki er talið líklegt að hann nái að vera kominn með leikheimild fyrir leikinn gegn ÍA í Landsbankadeildinni á sunnudag en hann ætti að vera orðinn löglegur í leik gegn Fylki í deildinni 10. ágúst.
Hann er ekki á skráðum leikmannalista FH fyrir aðra umferð forkeppni Meistaradeildarinnar og verður því ekki með FH gegn Legia Varsjá í Póllandi í næstu viku.
Siim lék með FH á síðustu leiktíð en hætti þegar nokkrar umferðir voru eftir og gekk í raðir danska liðsins Randers. Siim þykir afar góður knattspyrnumaður en náði aldrei að sýna hæfileika sína til fulls er hann lék með FH á síðustu leiktíð vegna meiðsla sem hrjáðu hann oft þá.
Honum fannst hann sjálfur ekki hafa náð að sýna sitt besta í Hafnarfirðinum og lýsti yfir áhuga á að koma aftur og sanna sig hér á landi.
Hann mun verða kærkomin viðbót í lið Íslandsmeistaranna sem misstu Davíð Þór Viðarsson í meiðsli í síðasta leik gegn Legia Varsjá. Davíð sleit hásin og verður ekkert meira með á árinu.

Heimild: FHingar.net