Fotbolti.net
28.07.07 - 20:06
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Emil Hallfreðsson til Reggina á Ítalíu (Staðfest)

Var einungis í tvær vikur hjá Lyn

Emil Hallfreðsson til Reggina á Ítalíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Reggina í Serie-A á Ítalíu hefur keypt íslenska landsliðsmanninn Emil Hallfreðsson frá Lyn í Noregi. Emil gekk til liðs við Lyn frá Tottenham fyrir einungis tveimur vikum en nú hefur hann gert fjögurra ára samning við Reggina.
,,Við fengum svo gott tilboð að við ákváðum að selja hann. Hann hefur verið hér í svo stuttan tíma að við höfum ekki einu sinni þurft að borga honum laun þannig að þú getur sagt að þetta sé góð fjárfesting," sagði Torgeir Bjarmann yfirmaður íþróttamála hjá Lyn við Aftenposten.

Emil gekk til liðs við Tottenham eftir að hafa slegið í gegn með FH sumarið 2004. Hann fékk ekki tækifæri með aðalliði Tottenham og á síðasta tímabili var hann í láni hjá Malmö í Svíþjóð.

Fyrir tveimur vikum fór hann síðan til Lyn en ljóst er að eini leikur hans með félaginu var gegn Bodö/Glimt í norska bikarnum í vikunni.

Reggina endaði í 14.sæti í Serie A á síðustu leiktíð með 40 stig líkt og þrjú önnur lið sem komu í næstu sætum.

Heimild: Aftonposten

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.