Fotbolti.net
28.07.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Spámaður

Jón Gísli Eyland spáir í toppslaginn og aðra leiki 16. umferðar í Lengjudeildinni

Jón Gísli Eyland.

Jón Gísli Eyland.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spámaður umferðarinnar í Lengjudeildinni er Jón Gísli Eyland, leikmaður ÍA. Um er að ræða 16. umferð en einn leikur er búinn í umferðinni (HK - ÍR 5-1) og spáir Jón Gísli því aukalega á einn leik í 2. deild.

Meðal leikja sem hann spáir í er stórleikur Þróttar og Aftureldingar sem fram fer á morgun, slagurinn um toppsætið.
Slagurinn um toppsætið - Fjórir ferskir til að fylgjast með
TENGT EFNI

Slagurinn um toppsætið - Fjórir ferskir til að fylgjast með

Ægir 0 - 3 Njarðvík (i kvöld 19:15)
Njarðvíkingar sigla þessu bara rólega í höfn með þéttum varnarleik og setja þrjú úr skyndisóknum.

Fylkir 4 - 0 Völsungur (á morgun 18)
Fylkismenn mæta brjálaðir eftir tap í síðustu umferð og munu vinna öruggan sigur, mörkin koma úr óvæntri átt því Hlynur Sævar skorar tvö með skalla bæði eftir horn og Guðfinnur Þór skorar tvö bæði úr langskoti fyrir utan teig.

Grindavík 2 - 2 Leiknir (á morgun 19:15)
Jafnteflis lykt af þessum leik bæði lið vilja ekki tapa svo þessi endar í jafntefli, Ingi Sig skorar mörk Grindavíkur og Birnir Breki og Arnór Valur skora mörk Leiknismanna.

Þróttur 3 - 2 Afturelding (á morgun 19:15)
Þróttara taka þetta í rosalegum leik í Laugardalnum, Moso strákar hátt uppi eftir síðasta leik en ná að klóra í bakkann í lokin og minka muninn en það dugar ekki til, fyrrum Tindastóls maðurinn Vilhjálmur Kaldal setur 1-2 í þessum leik.

Vestri 1 - 0 Grótta (3. ágúst)
Lokaður leikur en Breki Hermanns setur eitt rétt í lokin og heimamenn labba með þrjú stig ur þessum leik.

2. deild: Víkingur Ó 5 - 0 Fjölnir (miðvikudagur 19:15)
Mjög öruggur sigur hjá Viking Ó mönnum fyrir vestan, Skagamennirnir sjá um Fjölnismennina Kristófer Áki skorar þrennu og Gabriel og Kolbeinn sitthvor eitt.

Fyrri spámenn:
Sigurður Hrannar (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Amin Cosic (3 réttir)
Áki Sölva (2 réttir)
Alexander Rafn (2 réttir)
Andri Júl (2 réttir)
Kristófer Ingi (2 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Adam Páls (2 réttir)
Ásgeir Orri (1 réttur)
Eiður Orri (?)
Gerir Vilhjálmur Kaldal gæfumun?

Gerir Vilhjálmur Kaldal gæfumun?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir15+1030
4HK16+928
5Njarðvík15+223
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur15-1511
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.