Fotbolti.net
28.07.26 - 17:40
Ívan Guðjón Baldursson

Ipswich fær annan hollenskan markvörð (Staðfest)

Ipswich fær annan hollenskan markvörð (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Ipswich Town eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og hafa fest kaup á tveimur hollenskum markvörðum sem eru báðir afar hávaxnir.
Ipswich að krækja í öfluga leikmenn
TENGT EFNI

Ipswich að krækja í öfluga leikmenn

Hinn 26 ára gamli Kjell Scherpen verður aðalmarkvörður nýliðanna og kostar í heildina um 11 milljónir punda. Hann kemur úr röðum Union Saint-Gilloise í Belgíu en hefur einnig verið hjá Ajax og Brighton á ferlinum.

Scherpen gerir fjögurra ára samning á meðan samlandi hans gerir fimm ára samning. Sá heitir Kayne van Oevelen og er 22 ára gamall.

Ipswich borgar rúmar 4 milljónir punda fyrir Oevelen sem er keyptur sem mögulegur framtíðarmarkvörður félagsins. Mörg félög úr Championship deildinni hafa áhuga á að fá hann á láni út tímabilið en óljóst er hvort Gary O'Neil þjálfari Ipswich vilji halda honum til að veita Scherpen samkeppni.

Til gamans má geta að Scherpen er 2,06 metrar á hæð á meðan Van Oevelen er 1,99m.
Ipswich fær annan hollenskan markvörð (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.