28.07.26 - 17:09
Elvar Geir Magnússon
Freyr hefur fengið Þrándheimsbúa til að brosa á ný

Freyr Alexandersson.

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Freyr Alexandersson.

Mynd: EPA
Freyr Alexandersson hefur átt fullkomna byrjun með norska liðið Rosenborg en það vann þriðja leikinn í röð undir hans stjórn þegar það pakkaði Fredrikstad saman, 4-0, í norsku úrvalsdeildinni gær.
Fótboltasérfræðingurinn Lars Tjærnas segir við VG að Freyr hafi komið með töfrasprota og það væri nú skemmtilegt aftur að horfa á liðið spila.
„Þegar þú hefur verið dapur í svona langan tíma eins og Rosenborg hefur verið þá er auðvitað mikilvægast að vinna leikina. En í Þrándheimi eru einnig gerðar kröfur á það hvernig liðið spilar. Ég tel að Freyr hafi náð að haka við öll boxin," segir Tjærnas.

TENGT EFNI
Freyr hefur fengið Þrándheimsbúa til að brosa á ný
Þrándheimsbúar eru í skýjunum með sitt lið eftir að Freyr tók við og fara fögrum orðum um hann. Sjálfur kallar Freyr eftir því að fá enn fleira fólk á Lerkendal leikvanginn og öflugri stuðning.
„Akkúrat núna stend ég hér og hugsa: 'Af hverju er leikvangurinn ekki pakkfullur hvern einasta leik?'. Það eru svo miklir möguleikar," sagði Freyr við TV2 eftir leikinn.
Eftir vonda byrjun hefur Freyr blásið lífi í Rosenborg sem hefur klifrað upp í níunda sæti norsku deildarinnar. Næsta verkefni er heldur betur stór fyrir Frey, útileikur gegn Brann á sunnudag. Freyr var fyrr á árinu látinn taka pokann sinn hjá Brann en mætir nú aftur til Bergen.

Freyr Alexandersson etter 4-0-seier over Fredrikstad på Lerkendal????? pic.twitter.com/sEafogfR5g
— Rosenborg Ballklub (@RBKfotball) July 27, 2026
Heimild: VG