28.08.05 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Valente til Everton (Staðfest)

Fá nýjan liðsfélaga.

Fá nýjan liðsfélaga.

Everton hefur gengið frá kaupunum á Nuno Valente varnarmanni Porto á 1,5 milljónir punda. Valente stóðst læknisskoðun hjá Everton í dag og hefur hann gert þriggja ára samning við liðið.
David Moyes stjóri Everton hefur verið að leita að vinstri bakverði þar sem bæði Gary Naysmith og Alessandro Pistone eru meiddir. Valente sem á 18 landsleiki að baki fyrir Portúgal var lykilmaður í liði Porto þegar að það vann Meistaradeildina árið 2004.
Hann ákvað að fara frá Porto þar sem liðið var ósátt með að hann hefði ákveðið að leika áfram með landsliði Portúgala. Porto vildi að hann hætti því eftir að hann meiddist og varð frá í fimm mánuði fyrir um einu ári síðan.