28.08.06 - 14:59
Hafliði Breiðfjörð
Van Bommel til Bayern Munchen (Staðfest)

Van Bommel ásamt Felix Magath í dag.

Mynd: Getty Images

Van Bommel ásamt Felix Magath í dag.

Mynd: Getty Images
Hollenski miðvallarleikmaðurinn Mark van Bommel hefur skrifað undir þriggja ára samning við þýska stórliðið Bayern Munchen en hann er keyptur til félagsins frá Barcelona og er kaupverð talið 6 milljónir evra.
Van Bommel sem er 29 ára gamall komst í gegnum læknisskoðun í dag og mun hefja æfingar með liðinu á morgun. Á fréttamannafundi í Munchen í dag sagði van Bommel að það hafi ekki verið auðveld ákvörðun að fara frá Barcelona eftir aðeins eins árs dvöl þar en með þeim vann hann spænsku deildina og Meistaradeild Evrópu.
Hann sagði forgangsatriði núna að tryggja að Bayern vinni aaftur þýsku deildina og bikartitlla. ,,Sjáum svo hvað við getum gert í Evrópu," sagði hann. ,,Bayern eru alltaf með sterkt lið sem gerir þeim kleift að gera vel þar."