Fotbolti.net
28.08.06 - 15:14
Hafliði Breiðfjörð

Joaquin til Valencia (Staðfest)

Joaquin á landsliðsæfingu í Laugardal.

Joaquin á landsliðsæfingu í Laugardal.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spænski landsliðsmaðurinn Joaquin gekk í dag í raðir Valencia á Spáni en kaupverðið sem Real Betis fékk fyrir hann var 25 milljónir evra. Valencia staðfesti þetta á vefsíðu sinni í dag en Joaquin mun gera sex ára samning við Valencia.
Hvorugt félagið vildi staðfesta skilmála samningsins en spænskir fjölmiðlar fullyrða að kaupverðið sé um 25 milljónir evra. Því verður Joaquin næst dýrasti leikmaðurinn sem spænskt félag kaupir í sumar, á eftir Mahamadou Diarra sem Real Madrid keypti á 26 milljónir frá Lyon í síðustu viku.

Valencia hefur því keypt leikmenn á 45 milljónir evra í sumar, áður höfðu þeir fengið Fernando Morientes, Francesco Tavano og Asier del Horno.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.