Fotbolti.net
28.08.26 - 14:44
Elvar Geir Magnússon

Emery kveður Watkins með tárum og býður Jackson velkominn

Ollie Wakins er að fara á vit ævintýranna í Arabíu.

Ollie Wakins er að fara á vit ævintýranna í Arabíu.

Canon

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Aston Villa, ræddi við fjölmiðlamenn á fréttamannafundi í dag. Þar sagðist hann vera búinn að kveðja sóknarmanninn Ollie Watkins sem er á leið á vit ævintýranna hjá Al-Hilal í Sádi-Arabíu.

Emery staðfesti þá að Villa væri búið að kaupa Nicolas Jackson frá Chelsea til að fylla hans skarð.
Villa samþykkir tilboð í Watkins
TENGT EFNI

Villa samþykkir tilboð í Watkins

Kvaddi hann með faðmlagi og tárum
„Ég get sagt ykkur það að framkoma og hegðun Watkins var til fyrirmyndar. Við náðum ekki samkomulagi um að hann myndi spila fgegn Brighton en eftir leikinn sá hann eftir því og játaði að hafa gert mistök. Hann hafði rangt fyrir sér en við fyrirgefum það. Hann hefur alltaf sýnt mjög góða framkomu, gagnvart félaginu, okkur og mér," segir Emery.

„Fyrir mér er þetta frábær gaur, jafnvel enn betri manneskja en leikmaður. Ég kvaddi hann með risastóru faðmlagi og tárum. En nú er nýr kafli hafinn hér með Nicolas Jackson sem kemur í hans stað.“

Aston Villa mætir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á mánudaginn.
Nicolas Jackson kemur frá Chelsea.

Nicolas Jackson kemur frá Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

Unai Emery, stjóri Villa.

Unai Emery, stjóri Villa.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.