Fotbolti.net
28.09.06 - 12:24
Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Þórðarson ráðinn þjálfari ÍA (Staðfest)

Frá undirskriftinni rétt í þessu.

Frá undirskriftinni rétt í þessu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skagamenn tilkynntu nú í hádeginu að Guðjón Þórðarson hafi skrifað undir þriggja ára samning um að taka við þjálfun félagsins. Hann tekur því við starfinu af tvíburabræðrunum Arnari og Bjarka Gunnlaugssonum sem stýrðu liðinu frá miðju móti í sumar og út tímabilið.
Þetta er í fjórða sinn sem Guðjón tekur við liði ÍA. Hann stýrði þeim fyrst árið 1987, þá 1991-1993, svo 1996 og tekur svo við liðinu á ný tíu árum síðar.

Guðjón hefur gríðarlega reynslu við þjálfun en hann hefur starfað við það síðan árið 1987 þegar hann tók við ÍA. Hann starfaði síðast hér á landi á síðasta ári er hann tók við Keflavík í ársbyrjun en hætti með liðið þremur dögum fyrir Íslandsmótið í maí.

Hann stýrði íslenska landsliðinu frá 1997 til 1999 og undir hans stjórn náði liðið frábærum árangri og skaust upp heimslista FIFA. Eftir það fór hann til Englands þar sem hann tók þátt í Íslendingavæðingu Stoke City þar sem hann var knattspyrnustjóri.

Hann var hjá Stoke til ársins 2002 og árið eftir tók hann við Barnsley sem hann stýrði tímabilið 2003-2004. Hann kom svo heim til Íslands og tók við Keflavík og stýrði þeim fyrri hluta ársins 2005 en tók um sumarið við Notts County sem hann stýrði út síðasta tímabil.

Eftir það er hann kominn til Íslands og sagði í samtali við Fótbolta.net um miðjan september að hann ætli ekki að þjálfa erlendis aftur. Á þriðjudag tilkynntu Skagamenn svo um að Gísli Gíslason fyrrum bæjarstjóri væri orðinn formaður rekstrarstjórnar Meistaraflokks og annars flokks og þá þótti nokkuð ljóst að Guðjón myndi taka við liðinu sem var svo endanlega staðfest nú í hádeginu.

Hér á landi hóf Guðjón þjálfaraferilinn hjá ÍA 1987, tók við KA og stýrði þeim 1988-1990 en hann gerði þá að Íslandsmeisturum 1989. Hann stýrði ÍA aftur 1991-1993 þar sem hann kom þeim upp um deild og gerði þá að Íslandsmeisturum, tók við KR 1994-1995 og gerði þá að bikarmeisturum, tók við ÍA aftur 1996 og gerði þá að Íslands- og bikarmeisturum. Eftir það tók hann við landsliði Íslands.
Guðjón Þórðarson ráðinn þjálfari ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.