28.09.26 - 11:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Er Fabrizio Romano í herferð?

Lamine Yamal.

Mynd: EPA

Fabrizio Romano.

Mynd: Fabrizio Romano

Harry Kane þykir líklegastur til að vinna verðlaunin.

Mynd: EPA

Lamine Yamal.

Mynd: EPA
Það hefur verið mjög athyglisvert að fylgjast með Fabrizio Romano á samfélagsmiðlum upp á síðkastið. Í aðdraganda Ballon d'Or-verðlaunanna hefur ítalski blaðamaðurinn verið afar iðinn við að fjalla um Lamine Yamal, leikmann Barcelona og spænska landsliðsins.
Yamal er einn þeirra sem tilnefndur er til verðlaunanna og er meðal þeirra leikmanna sem eru taldir allra líklegastir.
Yamal er einn þeirra sem tilnefndur er til verðlaunanna og er meðal þeirra leikmanna sem eru taldir allra líklegastir.

TENGT EFNI
„Here we go“ - Er enn hægt að treysta Fabrizio Romano?
Romano er með rúmlega 29 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum X og hefur þar gríðarleg áhrif. Frá því september hófst hefur hann birt tæplega 70 færslur sem snúa að Yamal. Það gerir um 2,5 færslur á dag.
Margar þeirra tengjast Ballon d'Or og sérstaklega hefur Romano verið duglegur að fjalla um möguleika Yamal á að vinna verðlaunin.
Töluvert minna um Kane
Romano hefur vissulega fjallað mikið um fleiri leikmenn í baráttunni. Kylian Mbappé hefur til að mynda verið nokkuð áberandi hjá honum síðastliðinn mánuð. Þó ekki eins mikið og Yamal.
Harry Kane, sem er talinn líklegastur til að vinna verðlaunin, hefur hins vegar fengið töluvert minni umfjöllun hjá honum. Romano hefur birt um 20 færslur um Kane á sama tímabili.
Á samfélagsmiðlum hefur þetta ekki farið fram hjá fólki og er mikið rætt um þetta á X. Hvort um sé að ræða meðvitaða herferð eða einfaldlega fréttamat Romano er erfitt að segja, en það er ljóst að Yamal hefur verið afar stór hluti af efni hans í september.
Romano hefur byggt upp stórt vörumerki á síðustu árum, en hann hefur verið gagnrýndur fyrir að taka fé frá umboðsmönnum og félögum til að skrifa færslur um leikmenn á þeirra vegum. Tipsbladet í Danmörku fjallaði um málið á sínum tíma.
????????????????: Fabrizio Romano has made 70 Posts in 26 Days about Lamine Yamal! An average of almost 3 posts a day!
— ???????? (@TMfutbal) September 26, 2026
Is Fabrizio Romano a true journalist or a Lamine Yamal propagandist? ????pic.twitter.com/AVSGuZGyTf

Fabrizio Romano.

Mynd: Fabrizio Romano

Harry Kane þykir líklegastur til að vinna verðlaunin.

Mynd: EPA
