Fotbolti.net
„Here we go“ - Er enn hægt að treysta Fabrizio Romano?

05.08.26

„Here we go“ - Er enn hægt að treysta Fabrizio Romano?

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

„Here we go."

Þrjú orð sem nánast allir fótboltaáhugamenn þekkja.

Þegar Fabrizio Romano skrifar þau fara stuðningsmenn um allan heim að fagna. Fyrir marga eru þau staðfesting á því að félagið þeirra sé búið að landa nýjum leikmanni og að opinber tilkynning sé aðeins formsatriði.

Á rúmum áratug hefur ítalski blaðamaðurinn gjörbreytt því hvernig fylgst er með félagaskiptum í fótbolta. Hann hefur byggt upp eitt stærsta persónulega vörumerki fótboltaheimsins og orðið áhrifamesti fótboltafréttamaður heims.

En síðustu misseri hefur umræðan um Romano tekið nýja stefnu. Gagnrýnendur telja hann sífellt oftar setja magn fram yfir gæði, birta endurteknar uppfærslur til að knýja áfram umferð á samfélagsmiðlum og láta persónulega hagsmuni vega þyngra en blaðamennskuna.

Í þessari grein verður farið yfir hvernig Fabrizio Romano varð eitt stærsta nafnið í fótboltaheiminum, hvernig hann breytti heilli grein íþróttafréttamennsku og hvers vegna sífellt fleiri eru farnir að efast um heilindi hans.

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.