Fotbolti.net
28.09.26 - 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hvað er að frétta af Gregg Ryder?

Gregg Ryder.

Gregg Ryder.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það hefur lítið heyrst af Gregg Ryder hér á landi síðan hann yfirgaf KR sumarið 2024. Englendingurinn var í tæpa átta mánuði í Vesturbænum eftir að hafa tekið við liðinu fyrir tímabilið 2024.

Gregg byrjaði afar vel í Vesturbænum en svo fór að halla undan fæti og þegar honum var sagt upp störfum eftir tíu leiki var KR í áttunda sæti með 11 stig.
Tjáir sig í fyrsta sinn eftir viðskilnaðinn við KR - „Það eru klárlega vonbrigði"
TENGT EFNI

Tjáir sig í fyrsta sinn eftir viðskilnaðinn við KR - „Það eru klárlega vonbrigði"

Lítið hefur heyrst af Gregg síðan hann fór frá KR en hann er með sterka tengingu við Ísland eftir að hafa starfað hér á landi lengst af á sínum þjálfaraferli. Hann byrjaði sem aðstoðarþjálfari hjá ÍBV árið 2011, fór þaðan til Þróttar 2013 þar sem hann náði eftirtektarverðum árangri og kom Þrótti í efstu deild. Hann var hjá Þrótti til 2018 og fór þaðan til Þórs á Akureyri og var þar í eitt tímabil.

Fótbolti.net hafði samband við Gregg og spurði hvað væri að frétta af honum.

„Ég hef verið hjá Newcastle síðan í mars 2025, vinn í akademíunni þar, og það er í raun allt önnur hlið á þjálfun en ég hef kynnst á Íslandi og í Danmörku,“ segir Gregg en hann er að þjálfa það sem jafngildir 3. flokk hjá enska úrvalsdeildarfélaginu.

Áherslan í akademíunni er fyrst og fremst á einstaklingsþróun leikmanna og Gregg segir það hafa heillað sig mikið.

„Í þessu umhverfi snýst allt um einstaklingsþróun. Ég hef virkilega notið þess að vinna með yngri leikmönnum og einbeita mér að þessu starfi. Aðstaðan og gæðin eru mjög mikil og maður er stöðugt krafinn um að hugsa um þjálfunaraðferðirnar sínar. Það hefur gert mér kleift að þróast og bæta mig mikið sem þjálfari.“

Fylgist enn vel með Íslandi
Þrátt fyrir að hafa verið í Englandi í rúmt eitt og hálft ár hefur Gregg ekki misst tengslin við íslenskan fótbolta. Hann fylgist enn náið með gangi mála hér á landi og hefur haldið sambandi við marga af þeim sem hann kynntist á sínum tíma.

„Ég fylgist enn mjög vel með íslenskum fótbolta og á enn marga vini þar. Ég vona auðvitað að öllum mínum fyrrverandi liðum gangi vel og er sérstaklega ánægður að Þróttur sé aftur á leið upp í Bestu deildina.“

Gregg útilokar ekki að snúa aftur til Íslands einhvern tímann á ferlinum. Tengingin við landið er sterkari en bara fótboltinn enda er eiginkona hans íslensk og elsta dóttir þeirra fædd hér á landi.

„Ég gæti alveg séð fyrir mér að koma aftur til Íslands einn daginn. Konan mín er frá Íslandi og elsta dóttir mín fæddist þar, þannig að landið mun alltaf eiga sérstakan stað fyrir mig.“

Í augnablikinu er þó ekkert sem bendir til þess að hann sé á leiðinni til Íslands. Gregg er ánægður í starfi sínu hjá Newcastle og sér ekki fyrir sér breytingu á næstunni.

„Í augnablikinu er ég hins vegar mjög ánægður hjá Newcastle og ég sé ekki fyrir mér að það breytist á næstunni. Metnaður minn næstu árin er að leggja eins mikið af mörkum og ég get til Newcastle og hjálpa eins mörgum ungum leikmönnum og mögulegt er að þróast þannig að þeir geti tekið skrefið upp í aðalliðið.“

„Ef ég kem aftur til Íslands einhvern tímann í framtíðinni þá hef ég mun skýrari hugmynd um hvers konar félagi ég myndi vilja vinna með og hvaða aðstæður ég þyrfti til að geta unnið mína vinnu sem best. Það myndi skipta mig mjög miklu máli," sagði Gregg að lokum.
Starfar í dag í akademíu Newcastle.

Starfar í dag í akademíu Newcastle.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gregg var þjálfari KR sumarið 2024.

Gregg var þjálfari KR sumarið 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá St James' Park, heimavelli Newcastle.

Frá St James' Park, heimavelli Newcastle.

Canon

Mynd: EPA

Hvað er að frétta af Gregg Ryder?
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Hvað er að frétta af Gregg Ryder?
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.