Heimild: RÚV
Snjónum kyngir niður suðvestantil á landinu og færðin er erfið. Íslenska kvennalandsliðið á að mæta því norður-írska í seinni leik liðanna í leik um sæti í A-deild Þjóðadeildarinnar á Laugardalsvelli í kvöld.
Liðin mættust ytra á föstudaginn og Ísland vann leikinn 2-0 og er því í góðri stöðu fyrir seinni leikinn.
Liðin mættust ytra á föstudaginn og Ísland vann leikinn 2-0 og er því í góðri stöðu fyrir seinni leikinn.
Snjókoman gæti sett strik í reikninginn en RÚV segir frá því að staðan verði tekin á fundi með eftirlitsaðilum evrópska knattspyrnusambandsins (UEFA), dómurum og forráðamönnum beggja fótboltasambanda á fundi klukkan 10:30.
Rétt er þó að taka fram að slíkur fundur er alltaf haldinn að morgni leikdags og því er fundurinn klukkan 10:30 hluti af hefðbundnu regluverki.
Aðstæður og veður verða rædd á þeim fundi í takt við nýjustu veðurspár.
„Við undirbúum okkur undir það að það verði leikur, sama hvaða aðstæður við þurfum að takast á við. Við verðum klár í það. Það er annarra manna vandamál um hvernig þeir ætla að láta leikinn fara fram, ef það verður eitthvað vesen,“ sagði Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari á fréttamannafundi í gær.
Athugasemdir


