Fotbolti.net
28.10.26 - 18:58
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Liverpool og Chelsea: Rándýr bekkur hjá heimamönnum

Ngumoha byrjar gegn sínum gömlu félögum

Ngumoha byrjar gegn sínum gömlu félögum

Canon

Mynd: EPA

Liverpool tekur á móti Chelsea á Anfield í 16-liða úrslitum enska deildabikarsins í kvöld, en leikurinn hefst klukkan 20:00.
Andoni Iraola gerir fjölmargar breytingar á byrjunarliði Liverpool. Giorgi Mamardashvili tekur stöðu Alisson í markinu og þá koma Joe Gomez og Kostas Tsimikas inn í vörnina í stað Milos Kerkez og Jeremy Jacquet.

Trey Nyoni, Lewis Koumas, Rio Ngumoha og James McConnell koma einnig inn í byrjunarliðið, en Bradley Barcola, Alexander Isak, Florian Wirtz og Alexis Mac Allister setjast allir á bekkinn. Það er ansi dýr bekkur hjá Liverpool, en þessir fjórir leikmenn kostuðu félagið samtals tæpar 400 milljónir punda.

Xabi Alonso tekur leiknum hins vegar öllu alvarlegar og heldur sjö leikmönnum í byrjunarliðinu frá 2-0 tapinu gegn Tottenham. Danny Welbeck er fremstur í flokki og þá er Romeo Lavia á miðjunni ásamt Moises Caicedo og Jordan Henderson. Malo Gusto og Wesley Fofana koma einnig inn í liðið.

Liverpool: Mamardashvili, Araujo, Gomez, Van Dijk, Tsimikas, McConnell, Nyoni, Gravenberch, Ngumoha, Gakpo, Koumas.

Chelsea: Penders, Acheampong, Fofana, Lacroix, Gusto, Caicedo, Henderson, Lavia, Neto, Rogers, Welbeck.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.