28.10.26 - 18:13
Brynjar Ingi Erluson
Segir áfrýjun Arsenal vonlausa

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fyrrum úrvalsdeildardómarinn Dermot Gallagher telur ólíklegt að Arsenal hafi erindi sem erfiði með áfrýjun sína vegna rauða spjaldsins sem hinn 16 ára gamli Max Dowman fékk í tapinu gegn Fleetwood Town í enska deildabikarnum í gær.

TENGT EFNI
Arsenal áfrýjar brottvísun Dowman
Dowman var rekinn af velli á 86. mínútu eftir að hafa brugðist illa við grófri tæklingu Harrison Neal.
Neal náði vissulega til boltans en fylgdi harkalega á eftir. Dowman brást við með því að reka hnéð í Neal og fékk að líta rauða spjaldið fyrir vikið.
Arsenal hefur áfrýjað rauða spjaldinu og vonast til að fá það fellt úr gildi svo Dowman geti verið með gegn Liverpool um helgina. Gallagher hefur hins vegar litla trú á því að áfrýjunin skili árangri.
„Ég held ekki, vegna þess hversu harkalega Dowman brást við. Það sést vel hvað hann ætlaði sér og þess vegna held ég að áfrýjunin muni ekki bera árangur.“
„Mér fannst þetta vera rautt spjald. Fólk hefur verið að bera þetta saman við atvikið milli Cole Palmer og Mateus Fernandes á laugardaginn, en mér fannst það sem Dowman gerði aðeins harkalegra.“
„Hann veit nákvæmlega hvað hann er að gera og lyftir hnénu nánast eins og hann ætli að sparka í hann,“ sagði Gallagher.
Gallagher telur hins vegar að Arsenal hefði átt að fá aukaspyrnu vegna tæklingar Neal og að sá síðarnefndi hefði átt að fá gult spjald.
„Þótt Neal nái til boltans er tæklingin allt of harkaleg. Þetta er kærulaus tækling og hann tekur ekkert tillit til öryggis Dowman. Honum er alveg sama hvort hann fer í Dowman eða ekki. Hann veit að hann mun hitta hann þegar hann fer í þessa tæklingu og gerir sér fulla grein fyrir því hvað hann er að gera. Þetta er klárlega aukaspyrna og gult spjald,“ sagði Gallagher enn fremur.